Ingi Þór - Útgáfutónleikar

Háskólabíó

22 June

Afturámóti í samstarfi við Tuborg kynnir með stolti: Ingi Þór í Háskólabíó þann 22. júní

Ingi Þór er tiltölulega nýkominn fram á sjónarsviðið í tónlistarheiminum en hann gaf út sína fyrstu EP plötu sem ber nafnið “Fyrsta..” í október síðastliðnum. Þann 22. júní mun Ingi Þór halda útgáfutónleika plötunnar með einvala liði hljóðfæraleikara sér við hlið og sérstökum gestum. Ingi Þór mun flytja plötuna í gegn ásamt því að taka vel valdar ábreiður. Einnig munum við fá að heyra nýtt efni sem væntanlegt er til útgáfu á næstu mánuðum.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger