Jól á náttfötunum

Reykjavík City Theatre

6 dates

Ticket prices from

ISK 5,500

Jól á náttfötunum

Þá Gunna og Felix þarf sennilega ekki að kynna fyrir neinum enda hafa þeir glatt börn á öllum aldri í áratugi og verið brennandi í áhuga sínum og ástríðu fyrir barnamenningu. Nú bjóða þeir félagarnir - ásamt Karli Olgeirssyni - börnum og fylgdarfólki á dásamlega jólastund í Borgarleikhúsinu, alla sunnudaga á aðventunni. Gegnum tíðina hefur Felix gefið Gunnari sérlega góðar jólagjafir og þessi jól ætlar Gunni að launa vini sínum hugulsemina og gefa Felix bestu jólagjöf í heimi. Nú er gjöfin góða á leiðinni og bæði Gunni og Felix eru að farast úr spenningi rétt eins og öll börn sem bíða jólanna með fiðrildi í maganum. Jól á náttfötunum var frumsýnd í Gaflaraleikhúsinu síðustu jól en nú eru Gunni og Felix komnir á Litla sviðið í Borgarleikhúsinu og lofa gleði, söng, gríni og spennu og síðast en ekki síst jólahuggulegheitum!

Höfundar: Felix Bergsson og Gunnar Helgason
Leikstjórn: Björk Jakobsdóttir
Tónlist: Máni Svavarsson, Jón Ólafsson
Danshöfundar: Gunni og Felix
Leikmynd og búningar: Björk Jakobsdóttir
Lýsing: Freyr Vilhjálmsson
Hljóðmynd: Karl Olgeirsson, Máni Svavarsson
Píanóleikur: Karl Olgeirsson
Myndvinnsla: Ingi Bekk

Leikarar: Felix Bergsson, Gunnar Helgason, Karl Olgeirsso

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger