© 2026 Tix Ticketing
Ytri-Njarðvíkurkirkja
•
6. - December 8
Ticket prices from
ISK 4,900




Kertatónleikar Karlakórs Keflavíkur
Hinir árlegu Kertatónleikar Karlakórs Keflavíkur verða haldir í Ytri-Njarðvíkurkirkju sunnudaginn 6. desember og þriðjudaginn 8. desember kl. 20:00. Að venju fáum við góða gesti í lið með okkur og í þetta sinn eru það hinn eini sanni Guðjón Þorgils Kristjánsson sem sigraði söngkeppni Samfés árið 2024 og söngkeppni framhaldsskólanna, Hljóðnemann á þessu ári. Einnig ætlar hin frábæra sópransöngkona Martyna Gesella að hjálpa okkur að skapa sannkallaða hátíðarstemningu með sinni stórkostlegu rödd. Við lofum huggulegri jólastemmningu við notalegt kertaljós og ljúfan söng.

