Krakkar sýna leikrit

Reykjavík City Theatre

•

November 25

Ticket prices from

ISK 0

Krakkar sýna leikrit 

Krakkar sýna leikrit er sýningarröð sem samanstendur af tveimur ólíkum leikritum sem eru samin og flutt af krökkum og unglingum á aldrinum 12-15 ára. Höfundar og leikarar sýninganna eru nemendur á lokaári Leiklistarskóla Borgarleikhússins.

Tímarnir breytast og mennirnir með! 

Velkomin í Bestabæ! Hér er lífið litríkt og allir lifa í sátt og samlyndi. Hver dagur er öðrum betri, fullur af samveru, áhyggjuleysi og góðum nágrönnum. Dag einn fara undarlegir hlutir að gerast. Bæjarbúar fyllast stressi og áhyggjum og hafa ekki lengur tíma fyrir hvert annað. Enginn veit hvað veldur og smám saman breytist þessi litríki sælureitur í litlausa ringulreið. Mun Bestibær geta snúið við blaðinu og fundið aftur litinn í lífinu?

Leikhópur: 

Annabelle Lára Goðadóttir, Ásrún Embla Agnarsdóttir, Baldur Kárason, Guðný Þórarinsdóttir, Hekla Dýrleif Helgadóttir, Hlynur Axel Bjarkason, Inga Bríet Valberg, Kría Valgerður Vignisdóttir, María Sif Ásgeirsdóttir, Nína Sólrún Tamimi, Rafney Birna Guðmundsdóttir, Sverrir Davíð Jóhannesson, Urður Elísa Helgudóttir bjarnadóttir, Þór Bergmann Orrason

Sæbjúgan í súrum sjó 

Um borð í sjóræningjaskipinu Sæbjúgunni er allt að fara í vaskinn! Þegar skipstjórinn Siggi Skyrbjúga leggur af stað í leit að hinni dularfullu Gullfjöður tekur við ævintýri sem áhöfnin bjóst alls ekki við. Sjóveikir sjóræningjar, slúður, samskiptaleysi og sólstingur. Mun áhöfnin finna fjársjóðinn áður en hún gerir út af við sjálfa sig? Stórskemmtilegt sjóræningjaævintýri sem skilur engan eftir ósnortinn!

Leikhópur: 

Alodía Svövudóttir Petit, Aron Ernir Hilmarsson, Auðunn Darri Auðunsson, Bessi Hlíðberg, Blær Váli Haraldsson, Elvar Magni Ingvarsson, Fanney Rún Snorradóttir, Finnur Sólon Eyjólfsson, Freyja Sóllilja Björnsdóttir, Heiðrún Han Duong, Hildur Kristín Kristjánsdóttir, Hilmir Sveinsson, Margrét Júlía Reynisdóttir, Ragnhildur Arna Ingadóttir, Rebecca Lív Biraghi, Sonja Björt Birkisdóttir, Sóldís Anahita Shahsafdari, Ylfa Katrín Norðfjörð, Yrsa Rún Gunnarsdóttir og Þyrí Úlfsdóttir.


Listrænir stjórnendur

Leikstjórn Bestibær: Ylfa Ösp Áskelsdóttir 

Leikstjórn Sæbjúgan í súrum sjó: Eva Halldóra Guðmundsdóttir 

Leikmynd og búningar: Jökull Jónsson 

Aðstoð við leikmynd og búninga: Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir 

Ljós: Óskar Gíslason 

Hljóð: Guðmundur Elí Jóhannsson 

Verkefnastjórn: Emelía Antonsdóttir Crivello

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger