Hið fullkomna samband?

Gróska

•

November 19

Ticket prices from

ISK 2,900

HIÐ FULLKOMNA SAMBAND?

Traust, væntingar og árangur í sambandi auglýsingastofa og viðskiptavina. 

ÍMARK og SÍA leggja saman krafta sína og standa fyrir morgunfundi í Grósku þar sem við beinum sjónum að sambandi auglýsingastofa og viðskiptavina.

Hvað einkennir farsælt samstarf og hvernig getum við í sameiningu skapað meiri verðmæti og betri árangur? Hvenær er tímabært að endurskoða samstarfið, hvenær borgar sig að fara í útboð eða pitch, eða eru aðrar leiðir færar?

 

FRÁ HJÓNABANDSRÁÐGJÖF TIL ALÞJÓÐLEGRA RANNSÓKNA

Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi, opnar fundinn og veltir upp spurningunni um hvað einkennir góð sambönd.

Því næst fer Anna Kristín Kristjánsdóttir, meðstjórnandi SÍA og starfandi stjórnarformaður Hvíta hússins, yfir niðurstöður tveggja alþjóðlegra rannsókna sem varpa ljósi á samstarf auglýsenda og auglýsingastofa, væntingar beggja aðila og áskoranir sem fylgja vali á samstarfsaðilum. Hún ber einnig niðurstöður frá Íslandi saman við niðurstöður frá öðrum löndum.

Að lokum ræða fulltrúar úr bransanum hvað virkar í raun, hvað mætti betur fara og hvernig hægt sé að byggja upp sterkari og árangursríkari sambönd.

 

19. nóvember 2026 · 09:00–10:30 · Fenjamýri, Gróska

Félagar í ÍMARK: 2.900 kr. · Almennt verð: 4.900 kr.

 

Ekki félagi í ÍMARK? Kynntu þér aðild á imark.is.

 

Tryggðu þér sæti og taktu þátt í samtalinu um hið fullkomna samband!

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger