Hjartasvellið 2026

Bæjarbíó (hjartasvellið)

•

103 dates

Ticket prices from

ISK 1,500

Skautasvell í Jólabænum Hafnarfirði frá 13. nóvember til 23. desember 2026
Í nóvember og desember mun Hafnarfjarðarbær í samvinnu við Bæjarbíó starfrækja Hjartasvellið, 200 fermetra skautasvell fyrir fólk á öllum aldri. Svellið var fyrst opnað á aðventunni árið 2021 og hefur aldeilis slegið í gegn hjá unga fólkinu. Hjartasvellið verður í ár, líkt og í fyrra staðsett beint á móti Bæjarbíó fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar og Barböru.

100% vistvænt og 100% skemmtilegt
Hjartasvellið er 100% vistvænt þar sem hvorki vatn né rafmagn er notað til að frysta það. Svellið er byggt á sérhönnuðum gerviísplötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís sem býður uppá frábæra afþreyingu, upplifun og hreyfingu fyrir alla fjölskylduna.

Opnunartími Hjartasvellsins

  • Föstudaga frá kl. 16-20

  • Laugardaga frá kl. 13-20

  • Sunnudaga frá kl. 13-18

  • Þorláksmessa, opið 14-21

*Síðasta bókun er klukkutíma fyrir lokun

Fyrirkomulagið er einfalt:

  • Þú pantar þína skautaferð og skauta á www.tix.is best er að tryggja sér skautaferðina með því að kaupa miða fyrirfram á netinu

  • Hver skautaferð er 40 mín og hefst á heila tímanum

  • Hjálmur og skautar eru innifalin

  • Mikilvægt er að mæta tímanlega til að forðast raðir

  • Hægt er að kaupa allt að átta ferðir á 5.000 kr í sérstökum fjölskyldupakka og reiknast afslátturinn í körfunni sjálfkrafa. Eingöngu er hægt að kaupa fjöldskyldupakkann á tix.is

VERÐ

  • Hver skautaferð kostar 1.500 kr og eru skautar og hjálmur innifalið í ferðinni

  • Fjölskyldu pakki kostar 5.000 kr

  • Börn yngri en 6 ára verða að vera í fylgd foreldra

Dates

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger