© 2026 Tix Ticketing

IÐNÓ
•
15. - November 18
Ticket prices from
ISK 5,290




Ys og þys út af engu
Ys og þys út af engu (Much ado about nothing) er rómantískt gamanleikrit eftir William Shakespeare. Nú hafa hermennirnir snúið aftur til Messina og ástarflækjurnar fara fljótt af stað. Beatrís og Benedikt skiptast á glettnislegum skotum en virðast sammála um eitt: þau ætla aldrei að verða ástfangin, hvað þá hvort af öðru! Á sama tíma blómstrar ástin milli Heró og Kladíó en hamingju þeirra er skyndilega ógnað þegar lygasögur dreifast.
Ys og þys út af engu er bráðfyndið leikrit um ást, misskilning og blekkingar. Leikritið hefur verið sett upp við miklar vinsældir víða um heim, meðal annars á Broadway og hefur jafnframt haft gríðarleg áhrif á frásagnir samtímans. Nú sameina leikstjórarnir Kristín Þorsteinsdóttir og Sigríður Halla Eiríksdóttir krafta sína til að gefa þýðingu Helga Hálfdánarsonar á þessu sígilda verki nýjan blæ.

