Jón Hjartarson les Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í þremur hlutum

Hannesarholt

•

3 dates

Ticket prices from

ISK 2,000

Jón Hjartarson les Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson á þremur laugardögum í desember í Hannesarholti. 

Aðventa er ein þekktasta skáldsaga Gunnars og ein af gersemum íslenskra bókmennta. Sagan byggir á svaðilför Fjalla-Bensa, hundinum Leó og forystusauðnum Eitil í leit að eftirlegukindum á Mývatnsöræfum árið 1925. Bókin kom út 1936, fyrst á dönsku, en hún hefur verið þýdd á yfir 20 tungumál.

Jón Hjartarson, leikari, hefur átt langan og farsælan feril á sviði, leikið yfir 80 hlutverk með Leikfélagi Reykjavíkur, jafnframt komið fram í kvikmyndum, sjónvarps- og útvarpsverkum. 

Upplesturinn fer fram í Hljóðbergi, sal Hannesarholts, 5., 12., og 19. desember kl.11:30. 

Hægt er að kaupa miða á allar sýningarnar á 5000kr eða á staka sýningu á 2000kr.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger