Ítölsk jól með La Primavera – Jólakvöld í Santé

Rannsóknarsetur Santé, Skeifunni 8

•

18. - November 20

Ticket prices from

ISK 21,900

  Í ár koma jólin þrisvar. 

Í nóvember og desember breytist Santé í Skeifunni í hátíðarsal: eitt veglegt langborð fyrir 25–30 gesti þar sem réttirnir ganga manna á milli eins og í ekta fjölskylduboði. Hver vika er helguð sinni þjóð og sínum veitingastað. „Natale“ er dregið af latneska orðinu natalis, sem merkir fæðing. Þegar Ítalir halda jól er fjölskyldan í öndvegi og borðin svigna undan kræsingum. Leifur og félagar á La Primavera elda þessa viku, þar sem einfaldleikinn og hrein gæði hráefnisins fá að njóta sín.

MATSEÐILL
Til að byrja: Lardo, salumi og grissini Forréttir til að deila: Treviso og Castelfranco með gorgonzola, valhnetum og balsamik · Kolkrabbi með ólífum, kartöflum, sítrónu og ólífuolíu · Vitello tonnato
Milliréttur: Ravioli fyllt með graskeri og ricotta, borið fram með salvíusmjöri og parmesan
Aðalréttur: Bakaður saltfiskur „puttanesca“
Eftirréttur: Panettone brauðbúðingur

Innifalið í miðaverði: matur og öll þjónusta. Vín er keypt sér af vínseðli Santé með hóflegri álagningu. Kvöldið stendur kl. 18–22 í Santé Skeifunni, Skeifan 8.

Látið vita af ofnæmi og sérþörfum á sante@sante.is og við gerum okkar besta í samráði við eldhúsið.

Fyrirtæki geta bókað heilt kvöld fyrir 25–30 manns – sjá shop.sante.is/jolabord.  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger