Útgáfutónleikar Tu Ha? Tu Bjö!

Fantasía

•

November 15

Ticket prices from

ISK 4,000

  Útgáfutónleikar Tu Ha? Tu Bjö!  

  Tu Ha? Tu Bjö! er bæði spurningin og svarið. Rannsóknar- og tilraunaverkefni fjögurra blásara sem hefur leitt þá um ótroðnar slóðir í tónsmíðum og spuna. Samkomulag milli ólíkra tónskálda en jafnframt ólíkra flytjenda. Útkomunni mætti líkja við fiskitorfu sem syndir um samhæfð og samtaka en jafnframt frjáls og af því er virðist stefnulaus. Hún syndir bæði í grynningunum og í dýpinu, allt frá litríka kóralrifinu niður á myrkann hafsbotninn.

Nú í sumar gaf Tu Ha? Tu Bjö! út sína fyrstu breiðskífu Tu Ha? Tu Bjö! í samstarfi við Blöðruna, sjálfstæða plötuútgáfu. Platan hefur þegar hlotið lof og verðskuldaða athygli eins og til dæmis má heyra í umfjöllun Árna Matt í Straumum á Rás 1. Útgáfunni fagnar sveitin ásamt djörfum tónleikagestum á Jazzhátíð Reykjavíkur, State of the Art, tónleikaferðum um landið og nú með pompi og prakt á sérlegum útgáfutónleikum sunnudaginn 15. nóvember á Fantasíu við Austurstræti. 

 Tu Ha? Tu Bjö! 

 Hönnun: Elín Edda Þorsteinsdóttir  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger