© 2026 Tix Ticketing

Fantasía
•
November 21
Ticket prices from
ISK 5,900




Snorri Helgason og Snákarnir á Fantasíu
Snorri Helgason og hljómsveit hans Snákarnir koma fram í Fantasíu (Austurstræti 10a) laugardagskvöldið 21. nóvember 2026.
Þeir munu aðallega leika lög af plötunni Borgartún sem kom út í fyrra en í bland lög frá löngum ferli Snorra og glænýrri músík sem þeir eru að vinna að.
Snorri segir sögurnar á bak við lögin og hvernig þau urðu til en hljómsveitina Snákana skipa auk Snorra þeir Daníel Friðrik Böðvarsson (rafgítar), Guðmundur Óskar (rafbassi), Magnús Trygvason Eliasen (trommur), Tómas Jónsson (hljómborð og píanó) og Örn Eldjárn (rafgítar).

