Jólasöngvar Langholtskirkju

Langholtskirkja

•

19. - December 20

Ticket prices from

ISK 2,000

  Jólasöngvar Langholtskirkju

Fertugustu og áttundu Jólasöngvar Langholtskirkju verða haldnir í Langholtskirkju dagana 19. og 20. desember. Jólasöngvarnir eru ómissandi liður í hátíðahaldi margra og að venju verður boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur í hléi.

  

Fram koma Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar og Sunnu Karenar Einarsdóttur. Einsöngvari verður Harpa Ósk Björnsdóttir, en auk hennar koma fram einsöngvarar úr kórunum.

Hljómsveitina skipa:

  • Hjörleifur Valsson, fiðla.

  • Hrefna Vala Kristjánsdóttir, flauta.

  • Ástvaldur Traustason, píanó/orgel.

  • Richard Korn, kontrabassi.

  • Frank Aarnink, slagverk.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger