© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
November 22
Ticket prices from
ISK 8,900




Komdu með og fögnum saman fertugsafmæli einnar ástsælustu persónu íslensku kvikmyndasögunnar!
Afmælisveisla með öllu tilheyrandi í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 22. Nóvember frá kl. 14:00 - 17:00.
Gleðin hefst á samverustund með höfundi, leikstjóra og aðalstjörnu kvikmyndarinnar þar sem þær Guðný Halldórsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir og Edda Björgvins sitja fyrir svörum. Þá deila þær sögum og reynslu sinni af gerð myndarinnar og sjálf stórsöngkonan Diddú mætir og flytur titillagið.
Veitingastaðurinn Krónikan stendur svo fyrir veglegu kaffihlaðborði í anda Stellu fyrir sýningu myndarinnar. Á borðum verða glæsilegar brauðtertur, rjómaskreyttar hnallþórur og að sjálfsögðu laxahjarta fyrir Salómon.
Húsið opnar klukkutíma fyrr og að sjálfsögðu er opinn bar þar sem gestum gefst færi á að næla sér hressingu fyrir gleðina.
Einstakt tækifæri fyrir kynslóðirnar að sameinast og skála fyrir okkar konu, Stellu Löve.
Hlökkum til að sjá ykkur!

