© 2026 Tix Ticketing

GÓSS
•
17. - December 20
Ticket prices from
ISK 7,900




Við hlökkum til að spila fyrir ykkur í desember.
Hátíðlegt en umbúðalaust og vonandi bæði fallegt og skemmtilegt.
Okkur langaði að spila á fallegum og hlýjum stöðum með sál. Þess vegna völdum við annars vegar Fantasíu við hinn fagurskreytta Austurvöll og hins vegar Ægi 220 við höfnina í heimabæ Sigurðar, Hafnarfirði.
Með okkur verða okkar góðu vinir og framúrskarandi músíkantar, Guðmundur Óskar, Tómas Jónsson og Daníel Friðrik.
Við ætlum að spila okkar músík í bland við annað sem okkur þykir vænt um.
Við vonum að þið eigið með okkur notalega kvöldstund í desember.
Siggi & Siggi

