© 2026 Tix Ticketing
Breiðholtskirkja
•
October 17
Ticket prices from
ISK 3,000




Fjölskyldutónleikar fyrir börn á öllum aldri í Breiðholtskirkju.
Dúó Stemma leikur sér á á óhefðbundin hátt með íslensk þjóðlög frá tímum barokkmeistaranna. Þau munu m.a. spila á upprunaleg íslensk “barokkhljóðfæri” eins og hrossakjálka, steina og skeljar og umbreyta tónleikunum í ævintýri, þar sem tónlist, sögur, leikhústjáning og ótrúlegt safn hefðbundinna og heimagerðra hljóðfæra blandast saman.
Dúó Stemma samanstendur af víóluleikaranum Herdísi Önnu Jónsdóttur og slagverksleikaranum Steef van Oosterhout, sem hafa bæði leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands til fjölda ára.
Nánar um tónleikana hér: https://www.1515.is/atburdir/duo-stemma-brokkar

