Menningarfélag Akureyrar

•

November 8

Ticket prices from

ISK 3,500

Tónlistarfélag Akureyrar kynnir Söngkvartettinn Ferund ásamt Eyþóri Inga Jónssyni. Tónleikarnir verða í Hömrum Hofi á feðradaginn þann 8. nóvember næstkomandi kl. 16.

Flytjendur eru allir feður, og bjóða aðra feður og afkomendur þeirra, svo sem mæður, börn og formæður sérstaklega velkomin á þessa tónleika.

Kvartettinn hefur fram til dagsins í dag helst komið saman til að syngja við útfarir, en kemur nú fram í fyrsta skipti á einstökum tónleikum.

Á efnisskránni eru kvartettperlur úr ýmsum áttum innan og utan Íslands og ESB, flestar vel þekktar en aðrar mögulega minna þekktar hjá einhverjum gesta tónleikanna.

Flytjendur eru:
1. tenór - Óskar Pétursson
2. tenór - Jón Þorsteinn Reynisson
1. bassi - Ívar Helgason
2. bassi - Pálmi Óskarsson
Píanó - Eyþór Ingi Jónsson

Tónlistarfélagið færir styrktaraðilum bestu þakkir en þeir eru Tónlistarsjóður, Akureyrarbær og Menningarfélag Akureyrar.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger