JAZZHREKKUR Á HREKKJAVÖKU

Hannesarholt

•

October 31

Ticket prices from

ISK 2,500

  JAZZHREKKUR Á HREKKJAVÖKU
  

Er tónlistardraugur í Hannesarholti? Eða dansandi köngulær? Hefur norn lagt álög á allt

fullorðna fólkið?

JAZZHREKKUR er tónleikadagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem reiddir eru fram jazztónar

byggðir á þjóðtrú um að á hrekkjavöku verði skilin milli mannheims og heims hins

yfirnáttúrulega óljós; draugar, uppvakningar, nornir, álfar og huldufók birtast. Sýningin hefur

notið mikilla vinsælda víða um land en flytjendur eru Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona,

Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari og Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari sem einnig

semur tónlistina.

Ingibjörg Fríða er jafnframt þáttastjórnandi vinsælasta hlaðvarps RÚV í flokki barna- og

fjölskylduefnis, Þjóðsögukistunnar, sem fjallar um þjóðsögur og ævintýri. Hún er sögumaður

á tónleikunum og fléttar lögin saman við fróðleik og sögur um yfirnáttúrulegar verur á

hrekkjavöku.

Mega tónleikagestir búast við örlítið hræðilegum, en fyrst og fremst skemmtilegum

tónleikum með virkri þátttöku í gegnum klapp, söng og dans.

Jazzhrekkur hefur verið fluttur hátt í hundrað og fimmtíu sinnum víða um land á

undanförnum 7 árum, bæði í grunnskólum á vegum List fyrir alla en einnig í tónleikahúsum

eins og Salnum, Hörpu og síðast á Jazzhátíð Reykjavíkur í Hannesarholti. Óhætt er að

segja að sýningin hafi slegið í gegn hjá börnum og fjölskyldum. Hægt er að hlusta á plötuna

á öllum helstu streymisveitum undir nafninu Jazzhrekkur!

Öll velkomin að mætta í búningum!

 

Umsagnir gesta:

“Virkilega skemmtileg og grípandi fyrir börnin [...] náðuð að halda athygli þeirra allan tímann.

“Mjög flott og grípandi sýning”

“Krakkarnir skemmtu sér konunglega frá upphafi til enda. Töluðu mikið um sýninguna.

”

“Hræðilega skemmtileg :-)”

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger