Tui Hirv & Páll Ragnar Pálsson

Hannesarholt

•

November 7

Ticket prices from

ISK 3,900

  Tui Hirv & Páll Ragnar Pálsson  

  

Á tónleikunum flytja Tui og Páll Ragnar lög af nýútkominni plötunni sinni Layers.sem kom út hjá Sono Luminus þann 23. október síðastliðinn. Á plötunni eru útsetningar Tui og Páls á gömlum trúarlegum þjóðlögum, flest þeirra frá Eistlandi, en einnig frá Norðurlöndum og Bretlandi. Nafn plötunnar vísar þannig til uppruna laganna og hvernig þau hafa átt sér sín ólíku líf í gegnum tíðina. Lögin hafa verið sungin í hundruði ára og mótast eftir flytjendum og aðstæðum, í þetta skiptið í gegnum rödd Tui og gítarleik Páls Ragnars.

 Tui Hirv & Páll Ragnar Pálsson

Páll Ragnar Pálsson, gítarleikari og tónskáld, og Tui Hirv, söngkona og tónlistarfræðingur, ólust upp í sitthvorum heiminum, hann í íslensku rokksenunni með öllu því frelsi og leikgleði sem henni fylgdi, og hún í strang-akademísku skólakerfi Eistlands og kórmenningu. Leiðir þeirra lágu saman í tónlistarakademíunni í Tallinn og hafa síðan þá unnið saman að listsköpun, þar sem Tui hefur flutt tónverk Páls bæði hér og erlendis.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger