© 2026 Tix Ticketing
Laugarneskirkja
•
October 18
Ticket prices from
ISK 3,500




Úr djúpin
Á hausttónleikum Hljómeykis verða flutt nýleg íslensk kórverk ásamt hinu magnaða verki Canticum Calamitatis Maritimae eftir Jaakko Mäntyjärvi sem fjallar um eitt mannskæðasta og átakanlegasta sjóslys í sögu Evrópu á friðartímum þegar ferjan Estonia sökk árið 1994. Einnig verða fluttar tvær nýlegar þjóðlagaútsetningar eftir Hafliða Hallgrímsson sem hann gerði fyrir Hljómeyki árið 2024 og frumflutt verður nýtt verk eftir Guðrúnu Eddu Gunnarsdóttur. Stjórnandi er Stefan Sand.

