Konukroppar / Femme Physique

Sundhöll Reykjavíkur

•

November 15

Ticket prices from

ISK 3,900

KONUKROPPAR snúa aftur í Sundhöll Hafnarfjarðar!!!

Verkið hefur slegið í gegn og komið áhorfendum á óvart hér á landi sem og erlendis!!

Vertu með þegar Sundhöll Hafnarfjarðar breytist í leikhús.

Sambandið milli kropps og vatns er rannsakað í seyðandi verki sem liggur á mörkum dans- og sviðslistar.

Hver er munurinn á fáklæddum líkama og fullklæddum líkama? Hver er munurinn á hreyfingum í vatni og upp úr vatni? Verkið er óður til líkamans, í öllu sínu veldi; fellingar, hrukkur, appelsínuhúð, gæsahúð, skvabb, mjúkar línur, beinaber svæði

Í sundi. Kaltkaltkaltkaltkalt.

HRISTA HÚÐ

HRISTA MJAÐMIR

HRISTA BRJÓST

Ég hleyp á sleipum sundlaugarbakkanum. Bannað að hlaupa. Gæsahúð. Hvaðan kom öll þessi möl? Ég held um magann/brjóstin, get ekki beðið eftir að komast ofan í 39° heitt vatnið. Ahhh sleppi takinu á magavöðvunum og anda léttar. Ég er hólpin...

-nei hæ, þú hér?

Leikkonurnar, dansararnir og söngkonurnar Snædís Lilja Ingadóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir mynda sviðslistahópinn Gleym-mér-ei. Þær elska að vinna í stóru stúdíói þar sem þær geta dansað og hlaupið út um allt. Þær vinna mikið með spuna, fylgja innsæinu og elta flæðið í sköpunarferlinu. Í lok vikunnar er svo algjört möst að skála í góðu freyðivíni og gera upp vikuna.

Konukroppar er þeirra fyrsta verk en alls ekki það síðasta!

Höfundar og flytjendur: Snædís Lilja Ingadóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

Kvennakór: Graduale Nobili

Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á

https://www.reykjavikdancefestival.com/

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger