© 2026 Tix Ticketing

Fantasía
•
October 9
Ticket prices from
ISK 7,500




Bogomil Font mætir ásamt fjölskipaðri hljómsveit Greiningardeildarinnar og leikur spriklandi skemmtileg lög af nýútkominni gleðiskífu, sem kallast „Haf þú ekki áhyggjur af því“.
Þar er að finna ýmis hressandi kulda-kalypsólög, á borð við Sjóddu frekar egg, Skítaveður, Þú trumpar ekki ástina og dúettinn Þú stendur alltaf með mér. Auk þess rennir sveitin í eldri slagara úr safni Bogomils — ásamt smellum úr safni meðlima sveitarinnar.
Tónleikarnir verða haldnir í Fantasíu-salnum á Vinnustofu Kjarvals, og er gengið inn að Austurstræti 10a.

