Kammerjass og kórtónleikar

Fríkirkjan í Reykjavík

October 9

Ticket prices from

ISK 2,900

Á jörð ertu kominn” 1972.  - Frumflutningur

Jazzkantatan ,,Á jörð ertu kominn" eftir Gunnar Reyni Sveinsson við texta Birgis Sigurðssonar.

 

Flytjendur

Kammerkórinn Röst AK ásamt Cantoque Ensemble og Jazzbandi Kjartans Valdemarssonar, sem jafnframt annast útsetningar.

Einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir og Fjölnir Ólafsson.

Jazzbandið skipa Haukur Gröndal  saxafónn, klarinett og flauta, Gunnar Hrafnsson bassi, Pétur Grétarsson trommur og vibrafónn og Kjartan Valdemarsson píanó.

 

Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.

 

Verkið var samið árið 1972 fyrir Listahátíð í Reykjavík en vegna fráfalls einleikarans Viðars Alfreðssonar féll flutningurinn niður. Hilmar Örn var persónulegur vinur tónskáldsins og gaf hann honum handritið að verkinu með bón um að klára verkefnið. Hilmar Örn flutti hluta verksins á Jazzhátíð með Kammerkór Suðurlands árið 2006. Verkið verður nú frumflutt í heild sinni á ErkiTíð í október.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger