Aldarafmæli – Seinni hluti

Hallgrímskirkja

October 17

Ticket prices from

ISK 5,000

Afmælisveislan stendur enn!


Í tilefni af aldarafmæli Karlakórs Reykjavíkur mun hinn heimsþekkti sænski karlakór Orphei Drängar heiðra þau tímamót með Íslandsdagskrá sinni á hátíðartónleikum laugardaginn 17. október kl. 16:00 í Hallgrímskirkju.
Orphei Drängar (OD) var stofnaður í Uppsölum árið 1853 og er í fremstu röð karlakóra í heiminum. Kórinn er rómaður fyrir einstaka hljómfegurð, dýpt og kraftmikinn flutning sem spannar allt frá ástsælum norrænum kórperlum til glæsilegra nútímaverka m.a þeirra íslensku höfunda, Hildi Guðnadóttur og Þorkel Sigurbjörnsson. Í lok tónleikanna sameinumst við í kraftmikinn 200 manna kór sem mun njóta sín vel í stórbrotnu hljómrými Hallgrímskirkju.

Stjórnendur eru þau Cecilia Rydinger og Friðrik S. Kristinsson.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger