Afmælistónleikar Samkórs Kópavogs

Háteigskirkja

October 17

Ticket prices from

ISK 5,500

Samkór Kópavogs fagnar 60 ára afmæli sínu í október og býður af því tilefni til glæsilegrar söngveislu þar sem fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá verður í fyrirrúmi.Tónleikarnir fara fram í Háteigskirkju, laugardaginn 17. október kl. 16

Sérstakir gesti eru feðginin Elmar Gilbertsson, tenór, og Alvilda Eyvör Elmarsdóttir, sópran.

Elmar er einn af okkar þekktari tenor söngvurum og hefur átt farsælan feril í óperuheiminum, bæði hér heima og erlendis. Alvilda Eyvör er ung og upprennandi söngkona sem lauk söngnámi frá MÍT með framúrskarandi árangri. Hún stundar nú söngnám við Sibeliusar-akademína í Helsinki og mun brátt útskrifast þaðan með bakkalárgráðu.

Á efnisskránni verða íslensk og erlend þjóð- og sönglög í bland við þekktar perlur úr heimi óperunnar.

Píanóleikari er Peter Máté og stjórnandi er Lenka Mátéová.

Samkór Kópavogs var stofnaður í október árið 1966 og hefur allt frá stofnun verið virkur þátttakandi í tónlistarlífi Kópavogs og íslensku kórastarfi. Einn stofnenda og fyrsti stjórnandi kórsins var Jan Morávek, tónlistarmaður af tékkneskum uppruna sem setti sterkan svip á íslenskt tónlistarlíf á sínum tíma.

Komdu og fagnaðu 60 ára sögu Samkórs Kópavogs með okkur á hátíðlegri og skemmtilegri söngveislu!

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger