Skvísukvöld

Sviðið, Selfossi

September 17

Ticket prices from

ISK 3,990

SKVÍSUKVÖLD - góðgerðarkvöld fyrir konur 

Vertu með okkur í ógleymanlegu Skvísukvöldi á Sviðinu á Selfossi fimmtudaginn 17. september 2026!

Frábær söngkona stígur á svið og yfir kvöldið verða fjölbreytt skemmtiatriði, skemmtilegir pop-up sölubásar og happdrætti með glæsilegum vinningum.

Einn happdrættismiði fylgir hverjum aðgöngumiða og hægt verður að kaupa fleiri happdrættismiða á staðnum yfir kvöldið. Með því eykur þú vinningslíkurnar og styrkir um leið frábært málefni!

Við komu fá gestir óáfengan drykk í boði Ölgerðarinnar og freyðivínsglas í boði Mekka einnig verður bar verður á staðnum þar sem hægt verður að kaupa drykki.

Húsið opnar kl. 19:30 og dagskráin hefst stundvíslega kl. 20:00. Mikilvægt er að mæta tímanlega svo enginn missi af upphafi kvöldsins!

Um Sigurhæðir 

Sigurhæðir eru úrræði fyrir konur sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á Suðurlandi. Þar fá konur stuðning, ráðgjöf og öruggt rými til að vinna úr reynslu sinni og styrkja sig til framtíðar.

Með Skvísukvöldinu viljum við leggja okkar af mörkum og styðja við mikilvægt starf Sigurhæða. Allur ágóði kvöldsins rennur til þeirra.

  • Frábær söngkona og skemmtiatriði

  • Happdrætti með glæsilegum vinningum

  • Einn happdrættismiði fylgir hverjum aðgöngumiða

  • Skemmtilegir pop-up sölubásar

  • Óáfengur móttökudrykkur í boði Ölgerðarinnar og freyðivín í boði Mekka

  • Bar á staðnum

  • Allur ágóði rennur til Sigurhæða

Forsala: 3.990 kr. 
Við inngang: 4.990 kr. 

Takmarkaður fjöldi miða er í boði - tryggðu þér miða tímanlega!

Komdu, vertu með og styðjum gott málefni saman 

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger