Kótilettukvöld Samhjálpar 2026

Hilton Reykjavík Nordica

•

October 21

Ticket prices from

ISK 9,900

  Kótilettukvöld Samhjálpar 2026  

  

Komdu og eigðu skemmtilegt kvöld með okkur á árlegu Kótilettukvöldi Samhjálpar, sem verður haldið 21. október 2026 á Hilton Reykjavík Nordica. Kokkar úr kokkalandsliðinu sjá um að elda gómsætar kótilettur og boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með skemmtilegri tónlist, happdrætti og óvæntum uppákomum. Athugið að Kótilettukvöldið er áfengislaus viðburður.

Allur ágóði kvöldsins rennur til starfsemi Samhjálpar. Í rúma hálfa öld hefur Samhjálp veitt fólki í viðkvæmri stöðu stuðning og aðstoð, meðal annars einstaklingum sem glíma við fátækt, félagslega einangrun og afleiðingar langvarandi fíknivanda.

Samhjálp rekur meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot, þar sem pláss er fyrir 30 einstaklinga í meðferð við fíknisjúkdómum, Kaffistofu Samhjálpar, þar sem um 100 þúsund máltíðir eru gefnar á ári, auk áfanga- og stuðningsheimila í Reykjavík og Kópavogi.

Með þátttöku í Kótilettukvöldinu styður þú við mikilvægt starf Samhjálpar og hjálpar okkur að halda áfram að vera til staðar fyrir þau sem þurfa á aðstoð að halda. Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger