Nýdönsk

Hljómahöll

February 27

Sale starts

September 1, 2026, 10:00 AM

(in 1 week)

Nýdönsk fagnar 40 ára afmæli á þessu ári og heimsækir Hljómahöllina af því tilefni.   Skemmst er að minnast frábærra tónleika í húsinu í fyrra þar sem færri komust að en vildu.

Á síðasta ári kom út plata þeirra, Í raunheimum, sem inniheldur meðal annars stórsmellinn Fullkomið farartæki. Fáar ef nokkrar íslenskar hljómsveitir eiga jafn marga smelli og Nýdönsk og víst er að von er á góðu þegar piltarnir heimsækja Reykjanesbæ.

Hljómsveitina skipa þeir Björn Jörundur Friðbjörnsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm. Þeim til aðstoðar verða Guðmundur Pétursson, gítarleikari og Ingi Skúlason, bassaleikari.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger