© 2026 Tix Ticketing

IÐNÓ
•
October 10
Ticket prices from
ISK 5,990




GKR - 10 ára
10 ár eru liðin frá því að GKR gaf út plötuna „GKR“ í formi morgunkornspakka í Kjötborg og því ber að fagna!
Tónleikarnir sem fara fram í Iðnó munu líkt og allt sem GKR gerir, vera einstök upplifun.
Þann 10. október fyllir GKR Iðnó ásamt vel völdum gestum. Þetta eru fyrstu miðasölutónleikar GKR á Íslandi í 9 ár og einstakt tækifæri til að taka á móti honum á heimavelli.
Hann er loksins fluttur heim eftir 5 ára dvöl í Noregi og getur ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað lært hefur.
GKR ættu allir íslenskir tónlistarunnendur að þekkja en hann kom fram á sjónarsviðið árið 2015 með laginu sínu "Morgunmatur". Í dag er hann einn fremsti rappari landsins, þekktur fyrir rafmagnaða sviðsframkomu, framúrstefnuleg tónlistarmyndbönd og að koma íslensku rappi á heimskortið.
UPPHITUN: tatjana & ungurorri
Takmarkaður fjöldi miða á forsöluverði (NÝTIÐ YKKUR ÞAÐ)
VARÚÐ!
SJALDGÆFUR VIÐBURÐUR.
HÆTTULEGA GÓÐIR TÓNLEIKAR.

