© 2026 Tix Ticketing

IÐNÓ
•
July 26
Ticket prices from
ISK 2,500




Sigmar Matthíasson kvartett
Sunnudagskvöldið 26.júlí spilar bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson í Iðnó ásamt góðum félögum sínum. Hljómsveitina skipa, auk Sigmars á kontrabassa, þeir Tumi Torfason trompetleikari, Ingi Bjarni Skúlason píanóleikari og Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari. Þeir munu spila sín uppáhalds lög - jazz og ekki jazz og jafnvel eitthvað frumsamið en fyrst og fremst verður skemmtileg tónlist á boðstólnum. Sigmar hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi um árabil og m.a. gefið út þrjár sóló plötur - Áróra árið 2018, Meridian Metaphor árið 2021 og nú síðast Uneven Equator sem kom út 2024.

