Óður: Afmælistónleikar

Salurinn

October 18

Ticket prices from

ISK 4,900

Sviðslistahópurinn Óður fagnar fimm ára starfsafmæli sínu með líflegum afmælistónleikum þar sem áheyrendum er boðið í fjölbreytt og skemmtilegt tónlistarferðalag.


Frá stofnun hópsins árið 2021 hefur Óður hleypt nýju lífi í íslenskar sviðslistir með því að brjóta upp formfestu óperunnar. Með nálægð, leikgleði og stórsnjöllum íslenskum þýðingum hefur hópurinn sýnt og sannað að ópera á erindi við alla og heillað jafnt áhorfendur sem gagnrýnendur.


Hópurinn hefur vakið verðskuldaða athygli, en Óður hlaut Grímuverðlaunin árið 2023 fyrir starf sitt, var útnefndur Listhópur Reykjavíkur 2024 og hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin 2026 sem flytjandi ársins.
Á þessum afmælistónleikum fagnar Óður samleiðinni við áhorfendur síðustu fimm ár. Flutt verður dagskrá með mörgum perlum fyrstu fimm sýninga hópsins og mega gestir búast við sjarmerandi blöndu af drama, rómantík og húmor á sviðinu.


Hvort sem þú hefur fylgt Óði frá fyrsta degi eða ert að stíga þín fyrstu skref inn í heim óperunnar, þá hefur aldrei verið auðveldara að njóta óperu á Íslandi á sama hátt og fyrstu gestir fyrir hundruðum ára; í kröftugum kokteil leikhúsgleði og frábærrar tónlistar á tungumáli sem allir skilja.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger