Undir sömu stjörnu

Menningarfélag Akureyrar

October 18

Sale starts

June 29, 2026, 12:00 PM

(in 2 days)

  Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um Ástarstjörnu yfir  Hraundranga samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í  Evrópu. Var það mögulega sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir  beggja? 

Í þessari aðgengilegu og upplyftandi söngdagskrá er saga óperunnar rakin, frá  endurreisn til okkar daga, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. 

Einvala lið listamanna fléttar saman fróðleik og skemmtun og flytur okkur nokkrar  fegurstu perlur óperusögunnar. 

Fram koma Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór  Norðurlands, einsöngvarar Óperunnar og leikarar Þjóðleikhússins. Handrit og  leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard  Schwennicke, stjórnar hljómsveit. 

Frumsýnt verður 18. október í Hofi í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.  Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði, í Skálholti, í Reykjanesbæ og síðar í  Þjóðleikhúsinu.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger