Fjölskyldutónleikar á Reykholtshátíð

Reykholtskirkja

July 25

Ticket prices from

ISK 1,000

Fjölskyldutónleikar á Reykholtshátíð

Duo Stemma umbreytir tónleikum í ævintýri og á fjölskyldutónleikum á Reykholtshátíð flytja þau glænýtt verk sem hverfist um Reykholt, Snorra Sturluson og sögu staðarins. Duo Stemma er skipað víóluleikaranum Herdís Önnu Jónsdóttur og slagverksleikaranum Steef van Oosterhout, sem hafa bæði leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands til fjölda ára.

 

Á tónleikunum verða einnig flutt nokkur stutt kammerverk, bæði íslensk og erlend m.a. Lítill kvartett leikur sér eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Vísur Vatnsenda-Rósu og Krummi svaf í klettagjá í útsetningu Jóns Ásgeirssonar.

 

Flytjendur:

Duo Stemma

Elena Postumi, píanó
Pétur Björnsson, fiðla
Joaquín Páll Palomares, fiðla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló

 

Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar, reykholtshatid.is       

Sjáumst á Reykholtshátíð!
Húsið opnar kl. 14:30

Miðaverð: 1.000 kr.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger