BaKaBa - Kvartettfjör að vori

Menningarfélag Akureyrar

May 9

Sale starts

June 19, 2026, 11:00 AM

(in 14 hours)

  Strengjakvartett Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands ræðst í stórbrotið og fjörlegt vor prógram  að þessu sinni. Tónverk þriggja tónskálda mætast: þeirra Johanns Sebastians Bach, Karólínu  Eiríksdóttur og Béla Bartók. 

Fúgulistin eftir J.S. Bach má heita drauma tónsmíð allra tíma. Hún er sem kaleidóskóp;  innihaldið speglast, vendist og umsnýst á alla kanta í ótal mynstur, hvert öðru fallegra.  Strengjakvartett SN leikur valda kontrapúnkta úr því undursamlega furðuverki. 

Sex lög fyrir strengjakvartett eftir Karólínu Eiríksdóttur eru drauma tónsmíð okkar tíma.  Óútreiknanleg og margbrotin eins og vorið sjálft. Strengjakvartett SN heilsar birtu, veðrum  og uppátækjum íslenska vorsins með tónum Karólínu. 

Strengjakvartettar Béla Bartók eru meðal höfuðsmíða kvartettbókmenntanna. Strengjakvartett  SN flytur hér þann fyrsta, op. 7 í a-moll. Undir liggur lúmsk áætlun kvartettsins um að flytja  þá alla sex hægt og bítandi, einn af öðrum. Þá er best að vera með og hlusta strax frá byrjun. 

Kvartettfjör er í vændum! 

Flytjendur:
Greta Salóme Stefánsdóttir, fiðla
Marteinn J. Ingvason Lazarz, fiðla
Eydís Úlfarsdóttir, víóla
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger