Í tunglsljósi á ís

Menningarfélag Akureyrar

January 10

Sale starts

June 19, 2026, 11:00 AM

(in 11 hours)

  Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands & Tónlistarskólans á Akureyri. 

Áttatíu ára afmælisári Tónlistarskólans á Akureyri lýkur í janúar 2027. Af því hátíðlega  tilefni leiða Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Tónlistarskóli Akureyrar saman hesta sína  til að fagna nýju ári í álfhömrum Hamraborgar. Það verður herleg veisla og margt um dýrðir - íslensk sönglög og rímnadansar stíga í vænginn við sveiflu Vínarvalsa svo  kristalsljósakrónurnar dúa. 

Er Dóná ísi lögð? Svar við því fæst á þessum tónleikum, sem enginn skyldi missa af. 

Flutt verður tónlist eftir m.a. Atla Heimi Sveinsson, Ingibjörgu Þorbergs, Sveinbjörn  Sveinbjörnsson og Johann Strauss yngri.

Flytjendur:  Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger