TÖFRI TÖFRI

Tjarnarbíó

5 dates

Ticket prices from

ISK 3,900

Hinn eini sanni Lalli töframaður er mættur aftur í Tjarnarbíó með glænýja sýningu!

Í gegnum árin hafa sýningar Lalla í Tjarnarbíó heldur betur slegið í gegn á meðal áhorfenda og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frumlega og skemmtilega nálgun á leikhúsið.

,,Töfri Töfri” er fjölskyldu og barnasýning ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa, enda er sýningin stútfull af töfrum, gríni og gleði fyrir ÖLL.!!!

Lalli var 5 ára gamall þegar hann fékk fyrst áhuga á töfrum.

Í þessari sýningu býður hann áhorfendum í skemmtilegt ferðalag í gegnum líf sitt og alla þá töfra sem hafa á vegi hans verið.


,,Töfri Töfri” fjallar um Lalla (töframann) sem fékk áhuga á töfrum aðeins 5 ára gamall.

Á sýningunni munu leikhúsgestir fá að kynnast því hvernig Lalli nýtti ofurkraftana sína, sem sum flokka sem námsörðugleika, til þess að brjótast út úr skelinni og láta drauma sína rætast.

Vinur Lalla mun einnig koma við sögu en það er enginn annar er áhættuatriða-þvottabjörninn hann RINGÓ!

Ef þér finnst gaman að hlæja, láta koma þér á óvart og eiga fallega og skemmtilega stund að þá er sýningin ,,Töfri Töfri” með Lalla töframanni fullkomin sýning fyrir þig og þitt fólk.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Leikari: Lárus Blöndal Guðjónsson

Höfundar: Jónsi Hannesson, Lárus Blöndal Guðjónsson, Stefán Ingvar Vigfússon

Leikstjórn: Jónsi Hannesson, Stefán Ingvar Vigfússon

Ljósahönnuður: Ásta Jónína Arnardóttir

Búningahönnuður: Elma Bjarney Guðmundsdóttir

Sviðshreyfingar: Lea Alexandra Gunnarsdóttir

Sviðsmynd: Lárus Blöndal Guðjónsson

Leikmunir: Lárus Blöndal Guðjónsson, Guðjón Borgar Hilmarsson

Frumsamin tónlist: Karl Olgeirsson

Framleiðandi: Glimmer slf


Lengd sýningar er 45 mín


Sýningin er ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger