© 2026 Tix Ticketing
Smárabíó
•
September 17
Sale starts
May 28, 2026, 8:00 AM
(in 2 days)




Náðu forskoti á tímum framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI)
RIMC
Reykjavik Internet Marketing Conference 2026
Náðu forskoti á tímum framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI)
Markaðsumhverfið gengur nú í gegnum sína stærstu umbreytingu til þessa. Á RIMC 2026 beinum við sjónum að breytingu sem á sér stað í rauntíma: hvernig við tryggjum að vörumerkin okkar verði fyrir valinu í heimi framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI).
Við skoðum hvernig áherslan er að færast frá því að elta smelli og umferð, yfir í að hámarka líkurnar á að skera sig úr þegar gervigreind er farin að taka ákvarðanir fyrir hönd neytenda.
Dagskrá:
Hvernig Þjóðkirkjan notaði stafræna tækni til að tengjast notendum betur
Snæbjörn Ragnarsson, sköpunarstjóri hjá Pipar\TBWA og Elín Elísabet Jóhannsdóttir Löve, fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar
Hvað breyttist hjá IKEA? – Framtíð SEO, AEO/GEO, SEM og CRO
Arnoldo Cabrera, Digital Optimisation Manager hjá IKEA Global
Agentic Commerce Optimisation: How to prepare through UCP and ACP
Alex Moss, Principal SEO hjá Yoast
Omnichannel Gold: Why Physical Stores are the Ultimate Data Anchor for Agentic Commerce
Christian Sogn Iversen, forstjóri Sprellgruppen í Noregi
Framkvæmandi gervigreind og íslenskur raunveruleiki
Einar Thor, framkvæmdastjóri FINDS
Ráðstefnustjóri er Kristján Már Hauksson, CSO hjá Ceedr Nordic. Degi lýkur á líflegum pallborðsumræðum þar sem rædd verða hagnýt næstu skref. Að því loknu býðst þátttakendum að njóta léttra veitinga og skerpa tengslin á Happy hour.
Vinsamlegast athugið að dagskráin gæti tekið breytingum. Kaffi og te verður í boði á meðan ráðstefnunni stendur, og að henni lokinni bjóðum við upp á drykki og léttar veitingar.
Hádegisverður er ekki innifalinn.
Tryggðu þér miða og búðu þig undir næstu kynslóð markaðssetningar!

