© 2026 Tix Ticketing
Bullseye, Austurbæjarbíó
•
18 April
Sale starts
18 March 2026 at 12:00
(in 22 hours)




Ólsen ólsen mót X977
Ólsen ólsen, hugsanlega mest spilaða spil Íslandssögunnar?
Útvarpsstöðin X977 blæs til Íslandsmeistaramóts í Ólsen ólsen laugardaginn 18. Apríl kl. 15!
Þetta er annað Íslandsmeistaramót X977 í röðinni en mótið hafði ekki verið haldið síðan 2011.
Þátttökugjald er 2500kr og fara öll mótsgjöld í pottinn sem sigurvegari mótsins vinnur.
64 keppendur hefja leik og er keppt með útsláttarfyrirkomulagi. Sigurvegarinn þarf að vinna 3 spil til að komast í næstu umferð þar til einn stendur eftir.
Umsjónarmaður Íslandsmeistaramótsins í Ólsen ólsen er Tommi Steindórs og fer mótið fram á Bullseye í Austurbæjarbíói.
Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

