10cc

Harpa

23 June

Sale starts

3 March 2026 at 10:00

(in 6 days)

Ein áhrifamesta hljómsveit poppsögunnar, 10cc, er á leið til Íslands þar sem Graham Gouldman og frábært tónleikaband hans stíga á svið í Eldborgarsal Hörpu. Sveitin hefur áratugum saman skipað sér sess meðal merkustu nafna poppsins og tónlist hennar heldur áfram að höfða til nýrra kynslóða.

10cc er ein af þessum fágætu hljómsveitum sem hafa staðist tímans tönn. Stórsmellir á borð við I’m Not In Love, Dreadlock Holiday, Rubber Bullets, Good Morning Judge, Donna, Wall Street Shuffle og The Things We Do For Love lifa góðu lífi, meðal annars í kvikmyndum og þáttum á borð við Guardians of the Galaxy, After Life, Bridget Jones, Snatch og The Social Network.

Endurnýjaðar vinsældir sveitarinnar hafa þýtt uppselda tónleika víða um heim, þar á meðal í hinu goðsagnakennda Royal Albert Hall í London fyrr á árinu. Þar steig Kevin Godley óvænt á svið og söng í fyrsta sinn lagið ”Cry” með sveitinni á tónleikum.

Graham Gouldman, stofnandi, bassaleikari, gítarleikari og söngvari, hefur stýrt 10cc frá upphafi en núverandi skipan byggir á traustum grunni úr sögu sveitarinnar. Gítarleikarinn Rick Fenn hefur verið hluti af 10cc-fjölskyldunni síðan á áttunda áratugnum, en Keith Hayman, Iain Hornal og Ben Stone fullkomna hópinn.

,,Absolutely fantastic night”

,,Excellent show. Brilliant from start to finish. Not one negative”

,,What an absolutely fantastic concert”

,,What a fantastic concert.. Such and amazing evening , the quality of the sound brilliant... 10cc were just amazing”

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger