Már Gunnarsson & The Royal Northern College of Music Session Orchestra

Hljómahöll

16 November

Ticket prices from

ISK 9,900

Tónlistarmaðurinn og ólympíufarinn Már heldur tónleika í Salnum Kópavogi og Hljómahöll Reykjanesbæ ásamt 30 manna stórhljómsveit frá Manchester.

Öllu verður til tjaldað en hljómsveitina skipar glæsilegt hrynband, 12 manna strengjasveit, tré og málmblásturshljóðfæri, slagverk og söngvarar.

Á tónleikunum fá áhorfendur að heyra tónlist Más í bland við sígilda slagara í nýjum sinfónískum útsetningum.

Heiðursgestur sýningarinnar verður hinn víðfrægi enski söngvari Wayne Ellington.

Í nóvember 2024 hélt Már sína fyrstu tónleika ásamt RNCM session Orchestra við frábærar undirtektir. Í framhaldi hefur hann komið fram með sveitinni á fjölda viðburða í Englandi; má þar helst nefna tvenna uppselda tónleika í Manchester, og framkomu á tónlistarhátíðinni Candle Calling.

Ætlunin er að gera enn betur á Íslandi í nóvember, mikið er lagt í tónleikana sem verða stærri og veglegri en nokkru sinni fyrr. 

Enski söngvarinn Wayne Ellington sem sló svo eftirminnilega í gegn í The Voice Uk verður sérstakur heiðurssöngvari tónleikanna í ár.

Wayne hefur snert hjörtu milljóna manna um heim allan með söng sínum, en þetta verður í fyrsta sinn sem hann kemur fram á Íslandi.

Hann hefur deilt sviði með hljómsveitinni Blur, sungið í brúðkaupi Prince Harry og Meghan Markle svo eitthvað sé nefnt.

Við öll hlökkum svo til og við vonum að sem flest taki kvöldið frá og upplifi þessa stund með okkur.

Már og the Royal Northern College of music session Orchestra

Styrktaraðilar tónleikanna eru: uppbyggingarsjóður Suðurnesja, K. Steinarsson, menningarsjóður Reykjanesbæjar, Rétturinn, Bus4U, Kökulist og Sporthúsið Reykjanesbæ.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger