Bergur Ebbi - Hagsmunir

Tjarnarbíó

10. - 18 January

Ticket prices from

ISK 6,990

Bergur Ebbi mætir til leiks í Tjarnarbíó með glænýtt uppistand. Hagsmunir fjallar um samtímann og samskiptamynstur hans, hvernig við tölum saman, hvernig við hugsum um framtíðina og ekki síst um alla hlýlegu hversdagslegu hlutina sem skipta í raun mestu máli þegar upp er staðið.

Fyrri sýning Bergs Ebba, Kynslóðir, gekk fyrir fullu húsi í Tjarnarbíó á árunum 2022-23 og var sýnd hátt í fjörutíu sinnum. Þá var sýningin tekin upp og sýnd á RÚV árið 2024. Hagsmunir, er glæný sýning með nýjum efnistökum og nýjum hugsunum, og ætti ekki að valda aðdáendum góðs gríns og samfélagsgreininga vonbrigðum.

Bergur Ebbi er einn reyndasti uppistandari landsins með tæpa tveggja áratuga reynslu af uppistandi, fyrirlestrahaldi og alvarlegum jafnt sem gamansömum greiningum á samfélaginu í bókum, pistlum, sjónvarps- og útvarpsefni.

Um uppistandið Kynslóðir
„Sturlað fyndinn en líka alvöru hugsuður á fáránlega áreynslulausan hátt. Drepfyndnar pælingar, bráðþarfar í nútímamenningunni." - Auður Jónsdóttir, rithöfundur. FB

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger