Tómas og við

Salurinn

31 October

Ticket prices from

ISK 5,500

Diddú, Örn Árna og Jónas Þórir kynna:

Tómas og við - Íslenskar söngperlur við ljóð Tómasar Guðmundssonar.

Í þessari dagskrá ætla þau SIgrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) ,Örn Árnason og Jónas Þórir píanóleikari að flytja okkur nokkur ljóða Tómasar Guðmundssonar og syngja nokkur af þeim lögum sem samin hafa verið við kvæðin. Inn á milli ljóða og tónlistar verður fetað léttilega yfir feril skáldsins. 

Þó að Tómas hafi starfað við ýmislegt á yngri árum, eins og málflutningsstörf og á Hagstofu Íslands er hann þó fyrst og fremst þekktur sem ljóðskáld og er hann talinn eitt af stórskáldum Íslands á 20. öldinni. Hann var aðeins 24 ára gamall þegar fyrsta bók hans "Við sundin blá" kom út. Átta árum síðar er ljóðabókin Fagra veröld gefin út og seldist samstundis upp og eftir það var ljóst að orðstír Tómasar var tryggður og mörg ljóða hans á hvers manns vörum. Hann hefur oft verið kallaður Reykjavíkurskáldið og árið 1994 hóf Reykjavíkurborg að veita Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í minningu skáldsins.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger