Tix.is

  • Sep 27th 19:00
  • Sep 28th 19:00
Ticket price:8.990 - 14.990 kr.
Event info

Arctic Challenge í samvinnu við Þingeyjarsveit standa fyrir sælkeraveislu í Ýdölum. Um er að ræða tvö
kvöld og verða í boði um fimmtíu sæti hvort kvöld.
Sindri Freyr Ingvarsson matreiðslumaður, sigurvegari Arctic Chef 2024, sér um að matreiða dýrindis
krásir úr hráefni sem að magninu til kemur úr héraðinu.
Elmar Freyr Arnaldsson, framreiðslumaður, sem lennti í öðru sæti í Arctic Mixologist 2024, mun sjá
um vínpörun ásamt því að bjóða upp á kokteilinn sem að landaði honum öðru sætinu í keppninni.
Matseðill:

Taðreyktur silungur frá Geiteyjarströnd
soðbrauð - hvönn - broddkúmen - sýrður rjómi

Kartöflur frá Vallakoti
skessujurt – Feykir ostur – sinnepsfræ


Bleikja frá Haukamýri
súrmjólk – piparrót – gúrka frá Hveravöllum – rúgbrauð frá Bjarnaflagi

Ærfilé frá Hriflu
ærhjörtu frá Hriflu – grænkál frá Vallakoti – hamsatólgur frá Stóruvöllum

Skyrmús frá Hriflu
sýrð krækiber – aðalbláber – karamella – kerfill (ber tínd úr héraði)

Kokteilaseðill:

Stóruvellir Spritz
rabbarbarasíder – eldblóm – stikkilber

Wake up call
Arctic Mixologic kokteill 2024
kryddjurtalegið vodka – aperol, sætur vermouth, espresso infused

Skútustaðar-Sveppur
sveppalegið viskí – rúgbrauðsbjórssýróp frá Mývatnsöl – kakó bitter

Ýdalir mojito
romm – myntulíkjör – mjaðjurtarsýróp – hundasúra – lime