© 2024 Tix Ticketing
Hótel Geysir
•
8 December
Ticket prices from
ISK 10,800
Okkur gleður að kynna að hin sívinsælu fjölskyldu jólahlaðborð.
Skemmtunin hefst í skóginum kl. 15:00 þar sem fjórir jólasveinar taka á móti börnunum og foreldrum þeirra og allir njóta yfir ilmandi heitu súkkulaði og tröllapönnukökum. Gestum býðst svo að versla sér jólatré í skóginum og athugið að keyra þarf frá skógahúsinu að jólatréssölunni og salan þessa daga er eingöngu ætluð fyrir gesti jólahlaðborðsins.
Jólahlaðborðið hefst svo kl. 17:00 á Geysir veitingahúsi með fallegri jólatónlist og góðum jólamat. Börnin fá hlaðborðið sitt í sinni hæð og er það mjög aðgengilegt að velja sér kræsingar fyrir börnin. Eftir matinn sameinast allir og við tekur skemmtun þar sem allir koma saman og dansa og syngja.