Helgi Björns I 40 ár í bransanum I Stórtónleikar í Hofi

Hof

25 October

Ticket prices from

ISK 12,990

Árið 1984 birtist Hið helga Bé sem fullsköpuð stjarna á himnafestingu íslenskrar rokktónlistar.

40 árum síðar hefur Helgi Björnsson gert heila þjóð að vini sínum, kynslóð fram af kynslóð.

Jafnvel tíminn er vinur hans, enda hefur tíminn slípað þennan gimstein í áranna rás meðan Helgi hefur blygðunarlaust látið tímalausum perlum rigna yfir þjóð sem þyrstir eftir snertingu við hjartað.

Íslendingum finnst þessi rigning góð og það rignir enn.

Árið 2024 fögnum við 40 ára sígrænum ferli sem tímabundin trend ná aldrei að hagga.

Maðurinn sem fer alla leið; jafnvígur á grátur, hlátur, öskur, stans, dans, stendur Hólí Bí á skýi og skýtur þig með ástarörvum í hjartað. Segðu já og við ríðum sem vindurinn í sumar og haust.

Tryllingurinn hefst á tónleikaferð um landið og lýkur með ógleymanlegum stórtónleikum í Eldborg og Hofi í haust.

#HB40

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger