Bjórhátíð Ölverk 2024

Gróðurhús, Þelamörk 29

4 October

Ticket prices from

ISK 8,900

Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!

Bjórhátíðin mun fara fram helgina 4. til 5. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði en miðasala mun hefjast þriðjudaginn 30. júlí kl 12:00 inn á tix.is

Sjá staðfesta framleiðendur hér fyrir neðan en þessi listi er ekki tæmandi og mun uppfærast reglulega fram að sjálfri bjórhátíðarhelginni:

- Könglar ( Hallormsstaður )

- Hovdenak Distillery ( Reykjavík )

- Smiðjan brugghús ( Vík )

- Mývatn öl ( Mývatn )

- Malbygg brugghús ( Reykjavík )

- Mjólkursamsalan ( Selfoss/Reykjavík )

- Litla brugghúsið ( Garður )

- Víking brugghús ( Akureyri )

- Ölverk brugghús ( Hveragerði )

- Gæðingur brugghús ( Kópavogur )

- Ægir brugghús ( Reykjavík )

- Grugg & Makk ( Reykjavík )

- Borg brugghús ( Reykjavík )

- Álfur brugghús ( Reykjavík )

- Ólafsson gin ( Reykjavík )

- Kjörís ( Hveragerði )

- RVK Brewing Company ( Reykjavík )

- The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )

- Agla gosgerð ( Reykjavík )

- Session ( Reykjavík )

- Brennivín ( Reykjavík )

- Ölvisholt brugghús ( Hafnarfirði)

- Fágun ( Ísland )

- Bjórsetur Íslands ( Hólar í Hjaltadal )

- Lervig Brewery ( Norway )

- Dokkan Brugghús ( Ísafirði )

- Galdur Brugghús ( Hólmavík )

- Foss Distillery ( Kópavogur )

- Bruggsmiðjan Kaldi ( Árskógsandi )

- Oslo brewing ( Norway )

- Reykjavík distillery ( Hafnarfjörður )

- Komubucha Iceland ( Reykjavík )

- Og natura ( Hafnarfirði )

Dagskrá

Föstudagurinn 4. október
17:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum

20:05 - 20:20 Steinholding keppni bruggarana
20:20 Úlfur Úlfur
21:00 - 00:00 DJ Danni Deluxe

Laugardagurinn 5. október

16:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum
20:05 Páll Óskar
21:00 - 00:00 FM Belfast (DJ)

----- Aðrar hagnýtar upplýsingar -----

Staðsetning
Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 - Hveragerði.

Miðaverð
Helgararmband 14.500,-
Föstudagsarmband 8900,- ( takmarkað magn í boði )
Laugardagsarmband 8900,- ( takmarkað magn í boði )

Innifalið í miðaverði
Sérmerkt armband á einstaka bjór,- og tónlistarhátíð, afnot af sérmerktu Ölverk glasi, smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum, tækifæri til þess að þess að eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, sérvalin tónlistaratriði og danspartý.

Athugið smakkglösunum skal skila við útgang bjórhátíðarsvæðisins en hægt er að kaupa glasið fyrir 500,-.

Afhending armbanda

Fimmtudaginn 3. október verður á milli 18:00-21:00 hægt að nálgast armbönd gegn framvísun miða / kóða á Ölverk Pizza & Brugghúsi í Hveragerði.

Föstudaginn 4.okt - Á Ölverk veitingarstaðnum frá 16:00 til 17:00 / Á bjórhátíðarsvæðinu frá kl 17:00 til 20:00Laugardaginn 5.okt - Á Ölverk veitingarstaðnum frá 15:00 til 16:00 / Á bjórhátíðarsvæðinu frá kl 16:00 til 20:00

Aldurstakmark

20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )

Gisting

Hægt er að skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.

Samgöngur
Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is

Bílastæði
Nóg er af bílastæðum á malarplaninu á móti bjórhátíðarsvæðinu.

Veitingasala
Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingarstað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að við pöntunum kl 21:00).

Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á olverk@olverk.is

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger