Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði er vandlega farið yfir allt sem nauðsynlegt er að vita varðandi fjármál við starfslok. Á námskeiðinu er farið yfir flókið kerfi á mannamáli og verða þátttakendur full færir um að undirbúa sín starfslok með þeim hætti sem þeim hentar best.
31. ágúst kl. 09:00-12:00, fjarfundur á vefnum
Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:
Fyrirlesari svarar spurningum spurningum þátttakenda sem fá í kjölfar námskeiðsins sendan tékklista í sem gott er að hafa við höndina við undirbúning starfsloka.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja undirbúa sig vel og vandlega fyrir starfslok og ná betri yfirsýn yfir sín lífeyrismál. Námskeiðið hentar sérlega vel þeim sem eru 55 ára og eldri.
Ávinningur þátttakenda
Þátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda.
Fyrirlesarinn
Björn Berg Gunnarsson er fjármálaráðgjafi með 17 ára reynslu.Hann stýrði meðal annars greiningardeild og fræðslumálum Íslandsbanka og hefur haldið yfir 300 fyrirlestra um lífeyrismál. Björn er höfundur bókarinnar Peningar.