Tímans kviða | Tíbrá

Salurinn

23 February

Ticket prices from

ISK 3,900

Hér fléttast saman mögnuð kammerverk frá ólíkum heimum í flutningi píanókvartettsins Neglu en hann skipa fjórar ungar tónlistarkonur í fremstu röð; Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla, Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, selló og Þóra Kristín Gunnarsdóttir á píanó.

Píanókvartettinn Negla hefur starfað saman í tæp tvo ár og hefur á þeim tíma vakið athygli fyrir metnaðarfulla tónleika og flutning í hæsta gæðaflokki. Eitt af markmiðum kvartettsins er að stefna saman sjaldheyrðum kammerverkum við þekkt stórvirki klassískrar tónlistar líkt og raunin er hér.

Píanókvartett nr. 1 í D-dúr (1875) eftir tékkneska tónskáldið Antonín Dvorák er tvímælalaust þekktasta verk þessara tónleika, verk fullt af unaðslegum laglínum og dramatískum andstæðum þar sem glöggt má heyra hvernig tónskáldið lætur innblásast af þjóðlagatónlist heimalandsins. Enska tónskáldið Frank Bridge samdi Fantasíu fyrir píanókvartett árið 1910, en verkið, sem ólgar af ljóðrænni fegurð og magnþrungnum stefjum, er í sex stuttum þáttum sem saman mynda eina heild. Dark Rosaleen (2000) eftir bandaríska tónskáldið Lee Hoiby er innblásið af þekktasta ljóð írska skáldsins James Clarence Mangan þar sem Rósalín hin dökka birtist sem táknmynd fyrir heimalandið. Skáldið James Joyce var einn margra til að heillast af ljóði Mangan og samdi meira að segja við það lítinn lagstúf sem Hoiby nýtir sér í tjáningarríkri og litskrúðugri rapsódíu sinni en verkið ber undirtitilinn Rapsódía um stef eftir James Joyce.

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 12:30. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.

Efnisskrá

Frank Bridge (1879 – 1941)
Fantasía fyrir píanókvartett

Lee Hoiby (1926 – 2011)
Dark Rosaleen (2000)

Antonín Dvorák (1841 – 1904)
Píanókvartett nr. 1 í D-dúr

Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger