Söngleikurinn Vitfús Blú og vélmennin

Háskólabíó

13 August

Í samstarfi við Afturámóti

Árið er 3033. Úti er öll trú. Geim/vélmenna/stuðsöngleikssýningin VITFÚS BLÚ er handan við hornið. Eru þið tilbúin? Eru þið í stuði!?!?! Eins gott að panta miða sem fyrst, því aðeins takmarkaður fjöldi fær aðgang að Club DMX til að hlusta á Valerie Poppskínu fara með sinn nýjasta hittara: „Gimme Your Face”. Algríma Alheimsforseti er um þann mund að fullkomna Sálsundrunginn sem hún ætlar að nota til að sprengja sál mannkynsins. Mun henni takast það? Eða mun VITFÚS BLÚ stöðva hana í tæka tíð? Og mun takast að lögleiða hjónaband róbóta og manna? Vitfús Blú og Vélmennin er nýr íslenskur söngleikur sem fagnar ófrumleikanum og þversögnum mennskunnar í gegnum ýktan dans, stórsöng og ofleik.

Mjög takmarkaður sýningafjöldi - aðeins sýnt í sumar!

Leikstjóri, laga-texta-og handritshöfundur:Egill Andrason

Aðstoðarleikstjóri og meðhöfundur:Hafsteinn Níelsson.

Tónlistardramatúrg og meðhöfundur:Kolbrún Óskarsdóttir

Sviðshreyfingar:Sara Lind Guðnadóttir

Söngstjóri:Eik Haraldsdóttir

Leikarar:Halldór Ívar StefánssonHelga Salvör JónsdóttirMikael Emil KaaberMímir Bjarki PálmasonMolly MitchellSalka GústafsdóttirSölvi Viggósson Dýrfjörð

Hljómsveit:Guðmundur Grétar á gítarGuðjón Steinn Skúlason á saxófón og þverflautuJóhann Þór Bergþórsson á bassaOddur Helgi Ólafsson á harmonikku og saxófónÞorsteinn Jónsson á slagverkiÞórhildur Hólmgeirsdóttir í hljómsveitarstjórn og á hljómborði

Pródúsent á raftónlistUna Mist Óðinsdóttir

Hönnun á plakatiBrynja Sigurðardóttir

LjósahönnunSölvi Viggósson Dýrfjörð ásamt Agli Andrasyni

BúningahönnunHildur Kaldalóns Björnsdóttir

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger