UNDIR

Háskólabíó

14 August

Sale starts

20 November 2024 at 21:15

()

Í samstarfi við Afturámóti

UNDIR er nýtt leikrit eftir Adolf Smára Unnarsson.

Neðanjarðarlestarstöð. Rétt fyrir hádegi. Fimm einstaklingar bíða eftir næstu lest þegar þau taka eftir því að einhver liggur hreyfingarlaus á teinunum. Hrasaði hann þangað niður? Missti hann eitthvað? Er hann fullur? Dáinn? Það eru bara fjórar mínútur í lestina. Hvað gengur manninum til? Eitt af einu mála persónurnar á brautarpallinum upp mynd af aðstæðunum, hvernig þau muna morguninn. Erfitt er þó að fá skýra heildarmynd þar sem öll hafa þau sína útgáfu af sögunni, sem oftar en ekki er í algjörri þversögn við orð hinna. Það eru bara þrjár mínútur í lestina. Ætlar enginn að gera neitt?! Ætlar enginn að hjálpa manninum? Það eru bara tvær mínútur í lestina...

UNDIR er nærgöngult og ágengt leikrit eftir Adolf Smára sem hefur vakið mikla athygli fyrir sýningar á borð við Nokkur augnablik um nótt, Ekkert er sorglegra en manneskjan og Kannibalen. Hér leikstýrir hann hópi efnilegra leikara í baneitraðri, óvæntri og háskalegri kómedíu þar sem hugmyndum okkar um náungakærleik, ábyrgð og samfélag er snúið á hvolf.

Mjög takmarkaður sýningafjöldi - aðeins sýnt í sumar!

AÐSTANDENDUR:Texti og leikstjórn: Adolf Smári UnnarssonLjós og tæknilegar útfærslur: Magnús Thorlacius

Búningar: Júlía GunnarsdóttirTónlist: Ronja Jóhannsdóttir

Aðstoð við uppfærslu: Ástrós Hind Rúnarsdóttir

Leikarar:Berglind Halla ElíasdóttirBjörk GuðmundsdóttirFjölnir GíslasonJökull Smári JakobssonVigdís Halla Birgisdóttir

Next shows

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger