Strandgate Film Festival

Háskólabíó

7 July

Í samstarfi við Afturámóti

Víðfræga verðlaunahátíðin Strandgate Film festival verður haldin hátíðleg sunnudaginn 7. júlí. Allar stærstu myndir ársins keppast um ein virtustu verðlaun heims - aðeins þetta eina kvöld.

Stærsta kvöld ársins er gengið í garð. Skærustu stjörnur sólkerfisins verða samankomnar í Háskólabíó sunnudaginn 7. júlí til að keppa um ein virtustu kvikmyndaverðlaun veraldar. Þetta er því einstakt tækifæri til þess að sjá brot úr stærstu kvikmyndum ársins, á undan öllum hinum! Tilnefndar eru myndir á borð við „Ekkjuna“, „Blesi og lesbían“, „Draumórar“ og „Hefnandinn 4: hinsta hefnd Hefnandans.“ Rauði dregillinn verður á sínum stað eins og árin áður en mælst er til þess að gestir klæðist sínu fínasta pússi á hátíðinni.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger